UFO: Styrmir Örn Guðmundsson

11 December 2021 - 8 January 2022

Á sýninginunni UFO sýnir Styrmir röð nýrra origami skúlptúra sem hann brýtur saman úr messing. Málmurinn er beygður í skutlur, pílur og fljúgandi loftaflshluti. Áður hefur Styrmir notað slíka hluti sem brúður í ‘puppet slam’ gjörningum í Póllandi og Mexíkó. Vísindaskáldskúlptúrar eru áþreifanleg listaverk sem ætluð eru til leiks í sci-fi-sögu. Þau hringsólast og glitra í marglitu ljósi við undirleik stálpönnu á tónleikum sem fara fram sunnudaginn 12. desember kl 17:00. Flutt verða vel valin jólalög á olítunnu á bensínstöðinni.

Stálpanna er hljóðfæri frá Trinidad og Tobago. Hljóðfærið varð til í byrjun 20. aldar og er eitt af örfáum ‘acoustic’ hljóðfærum sem urðu til á síðustu öld. Pannan er handsmíðuð úr olíutunnu og er ásláttarhljóðfæri með handbarið nótnaborð úr krómuðu stáli í skipulagi fimmundarhrings. Gjörningurinn er frumraun Styrmis á stálpönnu en það hæfir vel að galdra fram tónlist úr olíutunnu á bensínstöð.