Facade no.3: Bjarni Þór Pétursson

2 February 2024
Verk Bjarna Þórs Pétursson dansa á mörkum hversdags og goðsagna, veruleika og skáldskápar, tóms og merkingar, þess manngerða og guðlega. Líkt og persónur í lokaðri bók eigra verurnar í verkum Bjarna um sérkennilega staði - eða staðleysur - þar sem tíminn hefur haft sig á brott. Þær bíða lesenda sinna: einhvers sem getur vitnað um tilvist þeirra svo sagan drattist úr sporunum, svo lífið nái sínu fram. En enginn virðist muna koma. Yfirborð sögunnar hefur rofnað og framvindan víkur sér stöðugt undan. Við erum stödd í rykugri latkistunni og það er meira að segja búið að kveikja á vinnujlósunum. Hér er ekki víst að nokkuð gerist framar. Þóttsögunni sé löngu lokið má samt greina bergmál þess sem einu sinni var.