Opin endalok I Open endings: Emma Heiðarsdóttir

1 July - 12 August 2023

við erum komin af öðrum eins og aðrir geta komið af okkur. Punktarnir dreifa úr sér, línan lengist ,hringurinn stækkar. Það eldra lifir í því yngra, það liðna í því líðandi.

 

Á sýningunni Opin endalok mætast nokkur ný verk sem tengjast öll í gegnum líkamlega og tilvistarlega þræði. Í verkum koma meðal annars fyrir hugmyndir um endaleysu og endanleika, kyrrstöðu og hugmyndalegan eða skynrænan samruna líkama og hluta.