Manneskjurnar Vonandi I Humans hoping: Ásta Fanney Sigurðardóttir

3 - 24 June 2023

Fyrir löngu var ekkert tákn fyrir ekkert. Síðan komu tákn sem gáfu til kynna að það vantaði eitthvað. Og að lokum komu fram hugmyndir um að ekkert sé eitthvað.

 

Á sýningunni vinnur Ásta með ýmiss konar goðafræði, lífsspeki, ævintýri, trú, helgisiði og birtingarmynd þeirra í hlutum, minjagripum, heillagripum o.fl. Til hliðsjónar er notkun á  yfirnáttúrulega hlöðnum hlutum og andlegu gildi þeirra frá fornum tímum og til dagsins í dag.