Upplausn: Hrafnkell Sigurðsson

1 - 5 January 2022

Verk, sem nú eru sýnd á yfir 350 skjáum um alla borg, bæði skjáum í strætóskýlum og stórum auglýsingaskjáum við fjölfarnar götur, heitir Upplausn og er eftir listamanninn Hrafnkel Sigurðsson.

Billboard, sem rekur auglýsingaskjái í strætóskýlum og við gatnamót á höfuðborgarsvæðinu, efndi síðastliðið haust til opinnar samkeppni um myndlistarverk í almannarými í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur og Y gallerí.

Listamaðurinn, Hrafnkell Sigurðsson, var valinn úr hópi yfir 50 umsækjenda en reikna má með að yfir 80% höfuðborgarbúa muni sjá verk hans dagana 1.–5. janúar í strætóskýlum borgarinnar. Hrafnkell lýsir verkinu, sem hann kallar Upplausn/Resolution, svona: "Verkið er abstrakt, það er ekki beint sýnilegt samhengi við umhverfið, það fer út úr öllu samhengi. Það er aftengt heiminum eins og við þekkjum hann".