Import – Export, Forever Logistics: Arnar Ásgeirsson

26 November - 31 December 2022
Á sýningunni í gömlu bensínstöðinni leikur Arnar Ásgeirsson við fagurfræði Hamraborgarinnar og raðar saman verkum sem sækja innblástur til nærumhverfisins. Verkin á sýningunni fjalla um myndmál verslunar á hversdagslegum varningi, innflutning og útflutning; og það sem úreldist.
Það eru ekki aðeins hlutirnir í kringum okkur sem hreyfast til og frá, heldur erum við sjálf farþegar á stöðugri ferð tímans. Á eilífum flótta undan síðasta söludegi. 
Sýningin er styrkt af Myndlistarsjóði.